Panorama Glass Lodge

Skadi (superior)

Required fields are followed by *



Reserve of 1 available accommodations.

Skadi - Superior (Vesturland) is available for selected dates.

Prices start at:

Skáli

Svefnpláss: 3

Beds: 1 King XL, 1 einbreitt rúm

Stærð 28 fermetrar

360° útsýni

Frekari upplýsingar

Lestu algengar spurningar okkar fyrir ítarlegri upplýsingar.

Skadi staðsettur nálægt Borgarnesi, í um 55 mínútna akstursfjarlægð frá Reykjavík. Þú sefur í glerhúsi með útsýni sem býður upp á magnað útsýni og frábæra möguleika á að sjá Norðurljósin í allri sinni dýrð þar sem litla sem enga ljósmengun er að finna. Það er líka frábært að njóta ótrúlegrar miðnætursólar á sumrin.

Skadi er fullkominn fyrir fjölskyldu með eitt barn eða þriggja manna hóp. Sérsmíðað rúm í XL King stærð með útdraganlegu rúmi er staðsett í miðjunni, umkringt gleri þar sem þú getur sofið undir stjörnunum eða miðnætursólinni. Hliðargardínur eru í boði, ef þörf er á.

Skadi er með hjólastólaaðgengi, sturtustóll er í sturtunni og handföng við klósettið. Láttu okkur vita ef þú óskar eftir húsi með hjólastólaaðgengi svo við getum aðstoðað við að gera upplifun þína enn betri.

Vinsamlegast athugaðu að glerþakið hefur engar gardínur, það getur verið umhverfisljós frá tungli eða sól og það verður ekki alveg myrkur. Við bjóðum upp á svefngrímur á sumarmánuðum.

Við bjóðum upp á fullbúið eldhús með kaffi og te, og grunnhráefnum til matargerðar (pasta, hrísgrjón, múslí, edik, krydd, salt, sykur og olía) og borð með tveimur stólum. Það er einnig ísskápur, brauðrist, helluborð með tveimur hellum, örbylgjuofni og lítilli uppþvottavél Morgunverður er ekki innifalinn og við bjóðum ekki upp á ferskar afurðir. Gestir þurfa að koma með allt slíkt.

Baðherbergið er rúmgott með sturtu með svokölluðum regnhaus (rainshower) í notalegu umhverfi og hreinlætisvörur frá íslensku fyrirtæki, Sóley organics. Heitur pottur til einkanota er við hvert hús. Sauna til einkanota fylgir Superior húsi eins og Skada

Aðstaða

Eldhús

Baðherbergi

Viðbætur

Eiginleikar

Innritun/Útritun

Innritun: eftir kl. 15:00

Útritun: kl 10:00

Trjástyrkur og framlag

Lestu meira um Trjástyrki og framlög sem þú getur bætt við í bókunarferlinu

Þetta gefur þér tækifæri til að leggja þitt af mörkum til náttúru- og loftslagsverndar á Íslandi og hjálpa íbúum og framtíðarferðamönnum að njóta okkar dásamlega lands um ókomin ár.

Bílaleigur

Að leigja bíl á Íslandi er frábær upplifun full af ævintýrum og frelsi sem veitir þér aukinn sveigjanleika og tækifæri til að njóta Íslands á þínum eigin forsendum.

Ef þú hefur ekki enn bókað bílaleigu þína á Íslandi, þá mælum við eindregið með Blue Car Rental.

Panorama Glass Lodge ehf.

Hafnarland Lísuborgir, 301 Akranes

+354 42 11 2 77 (mán-fös / 9-17 GMT)

Öllum fyrirspurnum er svarað innan 48 klst. Takk fyrir þolinmæðina.