Panorama Glass Lodge

Afbókunarskilmálar og reglur

Staðfestar bókanir

Eftir bókun ættu allir gestir að fá senda staðfestingu á bókun í tölvupósti Fáir þú ekki staðfestingarpóst, er það á þína ábyrgð að hafa samband við okkur til að kanna og laga villur sem kunna að hafa átt sér stað.

Innritun og útritun

Sjálfsinnritun hvenær sem er eftir klukkan 16:00. Gestir fá lyklakóða sendan í tölvupósti daginn fyrir komu. Kóðinn er í gildi til kl 11:00 á brottfarardegi.

Óski gestir eftir snemmbúnar innritunar eða síðbúnar útritunar er það háð framboði og er greitt fyrir hvern klukkutíma. Óski gestir eftir snemmbúnar innritunar eða síðbúnar útritunar er það háð framboði og er greitt fyrir hvern klukkutíma. Snemmbúin innritun / síðbúin útritun er hægt að panta og greiða fyrir í netverslun okkar, hámark 4 vikum fyrir komu.

Panorama Glass Lodge er ekki hótel. Það er ekki móttaka og engin þjónusta á staðnum.

Afbókunarskilmálar

Hægt er að afbóka gistingu allt að 30 dögum fyrir komu án greiðslu (fyrir utan 35 EUR vinnslugjalds frá greiðsluveitanda okkar sem alltaf þarf að greiða þegar bókun er afbókuð). 35€ gjaldið á einnig við ef bókaðar eru tvær nætur og ein afbókuð.

Sé gisting afbókuð með 29 til 15 daga fyrirvara innheimtum við óendurgreiðanlegt gjald sem nemur 25% af heildarverði bókunar. Sé gisting afbókuð með 15 til 10 daga fyrirvara þá rukkum við óendurgreiðanlegt gjald sem nemur 50% af heildarverði bókunar.

AFBÓKANIR SEM BERAST INNAN 10 DAGA FRÁ INNRITUN ERU MEÐ ÖLLU ÓENDURGREIÐANLEGAR. 100% AFBÓKUNARGJALD.

Það er engin endurgreiðsla fyrir þá sem mæta ekki án skýringa, eða svokallað „no shows“ – þetta gildir vegna truflunar á flugáætlun, bilana í bílum, veikinda, lokaðra vega eða veðurfars, slysa, skipulagsárekstra eða hvers konar vandamála sem valda þvi að gestir komast ekki á áfangastað á innritunardegi. Engar endurgreiðslur eru gefnar út fyrir snemmbúna brottför af sömu ofangreindu ástæðum. Beiðni um breytingar á mistökum í bókun (röng staðsetning eða hús osfrv.) eru einnig óendurgreiðanlegar, séu þær gerðar innan þess tímabils þar endurgreiðsla fæst ekki. Panorama Glass Lodge ehf. býður ekki upp á að breyta bókun innan 30 daga frá settum degi bókunar. Við hjá Panorama Glass Lodge ehf. gerum okkar besta til að koma til móts við gesti sem hafa bókað ranga staðsetningu, en við getum því miður ekki lofað því að hægt sé að breyta bókun með stuttum fyrirvara.

Við getum útvegað reikning fyrir gistingu fyrir ferðatryggingu, sé þess óskað.

Ekki er hægt að nota óendurgreiðanleg gjöld sem inneign fyrir bókun síðar meir.

Ekki er hægt að nota óendurgreiðanleg gjöld sem inneign fyrir bókun síðar meir. Sömu afbókunarreglur gilda í því tilfelli eða afbókunargjöld upp á 25-100% Ekki er hægt að nota óendurgreiðanleg gjöld sem inneign fyrir bókun síðar meir. Hægt er að færa dagsetningar á bókunum allt að 2 ár fram í tímann frá upprunalegum bókunardegi. Við bjóðum upp á að færa dagsetningar mest 2 ár fram í tímann, en sé bókun færð fram í tímann er ekki hægt lofa sama verði og á upphaflegu bókuninni og þá þarf að afbóka og bóka aftur.

Endurgreiðslur fara fram á sama hátt og með sama korti og greiðsla var gerð. Endurgreiðsla með öðrum hætti eða á annað kort er ekki hægt vegna öryggisástæðna. Vinsamlegast gerið ráð fyrir 7-10 dögum fyrir endurgreiðslu að berast. 

Við gefum upp verð í Evrum (EUR €). Athugið að gengi þess dags sem endurgreiðslan fer fram gildir. Vinsamlegast hafið samband við viðskiptabankann ykkar ef þið notist við annan gjaldmiðil.

Panorama Glass Lodge ehf. áskilur sér rétt til að afbóka einstaka bókanir sjái fyrirtækið sér ekki fært að uppfylla skilyrði um þjónustu vegna óviðráðanlegra aðstæðna eins og, en ekki takmarkað við óveður, verkföll, náttúruhamfarir eða aðrar aðstæður sem fyrirtækið hefur ekki stjórn á. Komi til þessa, mun fyrirtækið endurgreiða bókunina að fullu.

Ef Panorama Glass Lodge ehf. þarf að skerða bókun að einhverju tagi, vegna þjónustuskerðingar eða tæknilegra vandkvæða, mun fyrirtækið endurgreiða hluta af gjaldi, eftir því sem við á  is.

Panorama Glass Lodge áskilur sér rétta til að uppfæra/gera breytingar á bókunar og  afbókunarskilmálum án fyrirvara.

 

Reglur um drónaflug

Við viljum að gestir okkar fái að njóta friðhelgi og virðum einkarými þeirra til hins ýtrasta. Þess vegna eru reglur um drónaflug í kringum húsin okkar mjög strangar og við ætlumst til þess að gestir okkar fari eftir þeim, sér og öðrum í hag.

  • Heimilt er að vera með dróna á lofti frá kl 10:00 til 20:00 (10 AM – 8 PM)
  • Flugsvæði er 10 metra radíus frá því húsi sem þú bókaðir.
  • Það er með öllu óheimilt að fljúga dróna nálægt öðrum húsum eða hátt upp í loft.

Aflýsingar á áætlunarflugi

Um aflýsingar á flugferðum gilda sömu almennu skilmálar og hjá Panorama Glass Lodge og eru ekki á ábyrgð Panorama Glass Lodge. Gestum er bent á ferðatryggingar ef áhyggjur varðandi aflýsingar á flugum vegna veðurs, seinkunum ofl.

Öryggisstaðlar og ábyrgð

Panorama Glass Lodge ehf. er ekki ábyrgt fyrir áföllum, skemmdum, veikindum, meiðslum, slysum eða breytingum á skipulagi sem koma til vegna óviðráðanlegra aðstæðna eins og/ en takmarkast ekki af, veðri, verkföllum, náttúruhamförum eða hverju öðru sem er utan við það sem fyrirtækið hefur stjórn á. Allt slíkt er á ábyrgð gestsins.

Vinsamlega athugið að notkun allrar útiaðstöðu, þar á meðal, en ekki takmarkað við heita potta, sánu, hengirúm og önnur þægindi, er háð veðri og náttúrulegum aðstæðum. Það er ekki hægt að draga Panorama Glass Lodge ehf. til ábyrgðar ef gestir eru ekki tilbúnir að nýta aðstöðu okkar vegna utanaðkomandi orsaka eins og breytingar á veðri, stormi, vinds, rigningar, snjókomu, skordýra og annarra dýra, eldinga eða hvað annað náttúrulegt sem er ekki undir okkar stjórn. Endurgreiðslur eða bætur verða ekki veittar í slíkum tilvikum, þar sem þessar aðstæður eru taldar eðlilegur hluti af íslensku umhverfi og náttúru.

Við hvetjum gesti til þess að fá sér ferðatryggingu áður en komið er til landsins og annarra landa. Ferðatrygging getur bætt þig í neyðartilvikum, slysum og kostnaði sem hlýst af því að þurfa að aflýsa ferðum eða skoðunarferðum á síðustu stundu.

Gestir bera fulla ábyrgð á sjálfum sér og þeim sem þeir eru að ferðast með þegar komið er til okkar.

Til að tryggja öryggi ykkar og gera dvöl ykkar hjá okkur eins ánægjulega og kostur er biðjum við ykkur að hafa neðangreind atriði í huga:

  • Farið í sturtu án sundfata áður en farið er í heita pottinn.

  • It is recommended that guests take regular breaks (15-minute intervals) from the hot tub and sauna. Drink plenty of water to stay hydrated.

  • Panorama Glass Lodge ehf. Panorama Glass Lodge ber enga ábyrgð á verðmætum gesta.

  • Það er hvorki lífvörður né öryggismyndavélar í húsunum okkar. Gestir okkar bera því ábyrgð á sjálfum sér og sínum.

Gjafabréf

Gjafabréfskóða er hægt að nota á vefsíðunni okkar.

Gjafabréf fást ekki endurgreidd. Hægt er að nota gjafabréfin einungis fyrir gistingu og öðrum vörum sem við höfum að bjóða á netsíðunni okkar.

Gjafabréfin okkar gilda i 2 ár frá útgáfudegi. Vinsamlegast athugið að gjafabréfin gera ráð fyrir standard gistingu þannig að ef gjafabréfið er notað á hátíðisdögum (jól, áramót ofl.) má búast við að greiða þurfi auka gjald. Það er hægt að framlengja gildistíma gjafabréfa, en upphæð gjafabréfsins gildir að hámarki í 2 ár og er miðuð við standard verð á gistingu. Verðskrá hækkar á milli ára

og mega gestir búast við því að greiða mismuninn á gildi gjafabréfsins og verði gistingar, sé því framlengt. og gildir það að hámarki í 2 ár. Gera má ráð fyrir að greiða þurfi fyrir mismun ef gjafabréfi er framlengt. Það er alltaf hækkun á verðskrá milli ára.

Ferðalög með börn

Við bjóðum upp á ferðarúm fyrir börn upp að þriggja ára aldri / 15 kg.

Húsin okkar eru flest gerð með svefnrými fyrir tvo fullorðna einstaklinga. Fjölskylduhúsið okkar er með svefnrými fyrir fimm fullorðna einstaklinga. Við erum ekki með leyfi fyrir börnum eldri en þriggja ára í standard húsunum okkar. Fjölskylduhúsið okkar, Frigg, er fyrir fjölskyldur og útbúið með það í huga.

Börn yngri en 12 ára skulu ávallt vera í fylgd með fullorðnum.

Reykingar

Húsin okkar eru algjörlega reyklaus, þar með talin verönd. Ef vart verður við reykingar eru viðurlög við því 300 EUR sem verður skuldfært á kort.

Þrif

Þrif á húsunum eru innifalin í næturverði. Við áskilum okkur þó rétt til að rukka 80 EUR ef skilið er við húsin mjög skítug/ illa gengið um.

Myndir og myndbandsupptökur / efni

Óheimilt er að nota myndir og upptökur frá Panorama Glass Lodge í auglýsingaskyni án skriflegs samþykkis frá Panorama Glass Lodge ehf. Vinsamlega hafið samband við okkur ef áhugi er fyrir slíku. Við áskilum okkur rétt til að krefjast skaðabóta fyrir hvers kyns notkun sem er andstæð skilyrðum okkar.

Eldgos / Vegalokanir / Óveður

Eldgos eru tíð á Íslandi Í flestum tilfellum hafa þau, sem betur fer, ekki teljandi áhrif á flug til og frá landinu og öruggt er að ferðast um landið og gista í Panorama Glass Lodge. Við höfum ekki aðlagað skilmálana okkar að eldgosum, jafnvel þó þau kunni að valda truflun á flugumferð þá flokkast það undir óviðráðanlegar aðstæður (majeure force) og þar ber enginn ábyrgð. Endurgreiðslur eru því ekki gerðar í slíkum tilfellum.

Vegir geta lokast öðru hverju yfir vetrarmánuðina vegna óveðurs og/eða snjóa. Oftast eru hjáleiðir í boði auk þess sem vegalokanir gilda oftast einungis í nokkrar klukkustundir.

Ef þú ert veðurtepptur einhversstaðar á landinu, t.d í höfuðborginni eða á Vík, eða lengra frá okkur – en vegurinn að Panorama Glass Lodge er opinn, þá eru engar endurgreiðslur í boði. Við mælum með að gestir skipuleggi fram í tímann og skoði veðurspár 2-3 daga í kringum komudag. Það er mælt með að halda sig í nærumhverfi fyrir og eftir bókunardagsetningu ef von er á óveðri. Löng ferðalög yfir vetrarmánuðina eru ekki ákjósanleg.

Vinsamegast ekki bóka gistingu hjá okkur yfir vetrarmánuðina ef flugferð til baka er snemma morguninn eftir. Þannig aukast líkur á að lenda í vanda vegna vegalokana eða veðurs. Þú gætir þurft að breyta ferðaáætlunum þínum og skynsamlegt er að athuga ástand vega áður. Gestir bera sjálfir ábyrgð á því að athuga mögulegar lokanir á vegum og kanna hjáleiðir eða bíða í nokkrar klukkustundir þar til vegurinn opnast aftur.

Ef vegurinn að húsunum okkar er lokaður og starfsmenn Panorama Glass Lodge komast ekki þangað til að þrífa skálana vegna lokunarinnar mun Panorama Glass Lodge endurgreiða alla upphæðina til gesta í þeim tilfellum. Til viðmiðunar, þá getur slíkt komið fyrir 1-2 á ári að meðaltali í miklum óveðrum og snjó. Ef hægt er að gera allt tilbúið og leiðin er greið en gestir komast einhverra hluta vegna ekki,er endurgreiðsla ekki í boði.

Óskilamunir

Panorama Glass Lodge ehf. ber enga ábyrgð á tjóni eða skemmdum á eignum sem verða eftir í skálunum. Þú hefur möguleika á að sækja týnda/gleymda hluti allt að 7 dögum eftir útritun. Eftir þann tíma er farið með óskilamuni í Rauða Krossinn eða aðrar viðeigandi stofnanir.

Við höfum því miður ekki aðstöður til að geyma óskilamuni lengur. Ef þú vilt fá munina þína senda til þín, þarf að greiða sendingargjald fyrirfram auk 35 EUR þjónustugjalds. Við getum ekki ábyrgst hraðsendingar frá landinu þar sem koma þarf munum á pósthús.

Skemmdir á eign / Þjófnaður

Ef gestir valda skemmdum á eignum Panorama Glass Lodge á meðan á dvöl þeirra stendur (t.d eldur, skemmdir á innbúi, gardínum eða blettir á dýnu/rúmfötum) munu þeir verða rukkaðir fyrir skemmdunum og dregið verður af kreditkorti. Kvittun verður send fyrir virði hlutarins/ upphæð skemmda. Starfsfólk Panorama Glass Lodge ehf. tekur myndir af skemmdum til sönnunar.

Sama gildir um muni sem eru teknir ófrjálsri hendi (t.d baðsloppar, skrautmunir, rúmföt, teppi, púðar, raftæki). Starfsfólk okkar þekkir innbú hvers húss vel og láta vita um leið ef eitthvað vantar. Takk fyrir að koma fram við eiginina okkar eins og þú myndir koma fram við eigið heimili.

Verðskrá og greiðsluskilmálar

Panorama Glass Lodge ehf. áskilur sér rétt til að breyta verðskrá ef breytingar verða á hagkerfi, þar með talið, en takmarkast ekki við breytingar á gengi, verðbólgu, hækkun birgðakaupa, skatta og öðrum óviðráðanlegum aðstæðum (Force majuere). Verði breytingar á virðisauka eða sköttum, munu verð til viðskiptavina breytast í samræmi við þær breytingar. Verðbreytingar sem koma til vegna breytinga á sköttum mun hafa áhrif á allar bókanir, nema um þær bókanir sem hafa þegar verið staðfestar og greiddar að fullu. Verðskráin okkar gildir fyrir staðfestar bókanir og er virðisauki innifalinn. Falla undir breytingar á virðisauka (VSK).

Panorama Glass Lodge ehf.

Austurkrókur L6B, 851 Hella

+354 768 8821 (mán – fös / 9-19 GMT)

Við svörum öllum fyrirspurnum innan 48 klst. Þakka þér fyrir þolinmæðina.